Lýsing
Innihaldslýsing
- 300 g Gullauga kartöflur
- 1 laukur
- ólífuolía
- 5 egg
- Salt og svartur pipar
Aðferð
- Skrælið kartöflurnar og skerið í ca. 3mm skífur.
- Skrælið laukinn og skerið í þunnar sneiðar. Setjið 3 msk af ólífuolíu á meðalstóra tefflon pönnu á meðalhita og setjið laukinn og kartöflurnar á pönnuna.
- Lækkið hitann á pönnunni þannig að það sé vægur hiti á pönnunni og eldið í 25-30 mínútur eða þar til að laukurinn er orðinn gylltur og kartöflusneiðarnar gegnum eldaðar. Reynið að hræra ekki of mikið í kartöflunum til þess að forðast að eyðileggja sneiðarnar.
- Brjótið eggin í skál, kryddið með smá salt og svörtum muldum pipar og hrærið saman með gaffli.
- Þegar laukurinn og kartöflurnar eru gegnum eldaðar er pannan tekin af hitanum og kartöflunum og lauknum bætt varlega út í eggjamassann og blandað létt. Blandan er svo sett aftur á pönnuna á lágan hita og eldað í um 20 mínútur eða þar til að það er nánast ekkert fljótandi egg á yfirborðinu.
- Setjið disk á pönnuna þannig að hún loki pönnunni. Haldið disknum á pönnunni og hvolfið þannig að bakan falli á diskinn. Komið bökunni aftur á pönnuna þannig að hliðin sem snéri upp á pönnunni snú nú niður. Eldið í 5 mínútur í viðbót eða þar til að bakan er orðin gyllt og elduð í gegn.
- Veltið bökunni yfir á þann disk eða bretti sem á að bera þetta fram á.