Uppskrift Kramdar kartöflur

4
Til baka

Lýsing

Innihaldslýsing

800g Þykkvabæjar Gullauga kartöflur

8 msk Ólífuolía

1 tsk Flöguslat

2 tsk lauf af ferskum timjan stilkum

1/2 tsk svartur pipar, mulinn

Aðferð

  1. Sjóðið kartöflurnar til þær eru mjúkar (ca.15 mínútur).
  2. Setjið 4 msk af ólífuolíu á bökunarplötu og dreifið lauslega úr henni yfir plötuna.
  3. Takið kartöflurnar úr pottinum án þess að skræla og raðið þeim á plötuna – hafið gott bil á milli þeirra.
  4. Takið kartöflustappara, flatan spaða eða annað áhald og klessið kartöflunar niður. Ekki samt klessa þær alveg í mauk, heldur látið þær líkjast stórum, grófum klöttum.
  5. Takið restina af ólífuolíunni og penslið hverja kartöflu vel með olíunni.
  6. Dreifið vel af flögusalti og fersku timjan yfir kartöflurnar og piprið að lokum.
  7. Setjið karftöflurnar inn í 200° heitan ofn og bakið í 20 – 25 mínútur eða þar til þær eru gullnar og stökkar.