Lýsing
Innihaldslýsing
800g Þykkvabæjar Gullauga kartöflur
8 msk Ólífuolía
1 tsk Flöguslat
2 tsk lauf af ferskum timjan stilkum
1/2 tsk svartur pipar, mulinn
Aðferð
- Sjóðið kartöflurnar til þær eru mjúkar (ca.15 mínútur).
- Setjið 4 msk af ólífuolíu á bökunarplötu og dreifið lauslega úr henni yfir plötuna.
- Takið kartöflurnar úr pottinum án þess að skræla og raðið þeim á plötuna – hafið gott bil á milli þeirra.
- Takið kartöflustappara, flatan spaða eða annað áhald og klessið kartöflunar niður. Ekki samt klessa þær alveg í mauk, heldur látið þær líkjast stórum, grófum klöttum.
- Takið restina af ólífuolíunni og penslið hverja kartöflu vel með olíunni.
- Dreifið vel af flögusalti og fersku timjan yfir kartöflurnar og piprið að lokum.
- Setjið karftöflurnar inn í 200° heitan ofn og bakið í 20 – 25 mínútur eða þar til þær eru gullnar og stökkar.