Lýsing
Innihaldslýsing
1 kg Þykkvabæjar Skyndikartöflur
300 g Sykur
50 g Smjör eða smjörlíki
1 dl Rjómi
Aðferð
- Tæmið forsoðnu skyndi kartöflurnar úr pokunum og sigtið vökvann frá sem gæti verið í pokanum.
- Setjið sykur á pönnu ásamt smjöri eða smjörlíki og hitið pönnuna.
- Þegar smjörið eða smjörlíkið er bráðið, er hrært í þannig að það blandist vel sykrinum.
- Þegar sykurbráðin er orðin vel gyllt og sykurinn uppleystur/bráðinn er kartöflunum bætt út í.
- Hrært saman við sykurinn í smá tíma.
- Rjómanum er bætt út í og hrært í og hitað þar til að kartöflurnar eru orðnar heitar í gegn og þær fallega brúnaðar