Lýsing
Bearnaise kartöflusalat með rifnum osti, frábært meðlæti með allskonar mat
Innihaldslýsing
1 stk Bearnaise kartöflusalat (400g)
80-100g af rifnum osti
Handfylli af graslauk
Aðferð
- Tæmið kartöflusalatið í lítið eldfast mót eða lítinn álbakka.
- Dreifið rifnum osti yfir
- Skerið graslauk smátt niður
- Bakið í miðjum ofni við 200°C í 12-15 mínútur, eða þangað til osturinn er fallega gulbrúnn.
- Verði ykkur að góðu.