Gæði og matvælaöryggi eru einn mikilvægasti þátturinn í starfsemi Þykkvabæjar. Mikið er lagt upp úr að afhenda ávallt gæðavöru úr úrvals hráefnum sem standast væntingar viðskiptavina. Starfsemi fyrirtækjanna og framleiðsluvörur skulu uppfylla opinberar reglur og kröfur sem um reksturinn gilda til að tryggja öryggi matvælanna.
Í fyrirtækinu er starfrækt gæðakerfi sem byggir á HACCP aðferðafræðinni sem stuðlar að öryggi og góðum starfsháttum og er mikilvægt tæki til að ná fram þeim gæðamarkmiðum sem fyrirtækið setur sér.
Gæðamarkmið Þykkvabæjar eru:
- Ávallt skal framleiða gæðavöru úr úrvals hráefnum. Nota skal bestu fáanlegu hráefnin á hverjum tíma og skulu þau vera fersk, örugg og hrein og hljóta rétta meðferð til að tryggja gæði þeirra.
- Framleiðsluvörur fyrirtækisins skulu ætíð uppfylla væntingar viðskiptavina.
- Framleiðsla skal vera stöðluð. Mikið er lagt upp úr að matvæli séu alltaf eins í framleiðslu til að tryggja stöðugleika.
- Ávallt skulu góðir starfshættir viðhafðir og skal meðferð hráefna og vörumeðferð öll vera í samræmi við best þekktu aðferðir á hverjum tíma.
- Þátttaka og skilningur starfsfólks er mikilvægur þáttur í að viðhalda og bæta gæðakerfi fyrirtækisins. Allir starfsmenn fá viðeigandi þjálfun og fræðslu þannig að þeir þekki og skilji gæðastefnuna og fylgi henni í starfi sínu.
Þykkvabæjar leggur áherslu á samfélagslega ábyrgð og að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar. Stöðugt skal vinna að endurbótum til að lágmarka áhrif fyrirtækisins á umhverfið.
Áherslur í umhverfisstefnu Þykkvabæjar
- Fylgja skal lögum og reglum um umhverfismál og uppfylla opinberar kröfur sem gilda. Starfsmenn skulu vera meðvitaðir um mikilvægi verndunar umhverfisins.
- Flokka skal sorp til endurvinnslu. Í Þykkvabæjar er lífrænn úrgangur nýttur í skepnufóður og áburð.
- Áhersla á að nota efni og rekstrarvörur sem eru umhverfisvænar. Stöðug endurskoðun á umbúðum matvæla með umhverfissjónarmið í fyrirrúmi t.d. að minnkun plasts eins og kostur er en þó aldrei á kostnað öryggis matvælanna.
- Reynt eftir fremsta megni að lágmarka matarsóun.
- Lágmarka eins og unnt er akstur, bensínkostnað og mengun sem því fylgir. Stefnt að því að rafmagnsvæða bílaflotann. Hagrætt er í sendibíla sem flytja vörur í búðir með því að skipta akstursleiðum upp eftir hverfum. Aðeins einn bíl frá Þykkvabæ sem kemur með hráefni úr bænum í Þykkvabæ og tekur í bakaleiðinni fullbúin matvæli í vöruhúsið í Garðabæ. Í Þykkvabæjar er reynt að ráða starfsfólk sem býr á svæðinu.
- Lágmarka notkun á rekstrar og skrifstofuvörum. Minnka prentun/ljósritun með aukinni notkun kerfa á rafrænu formi.
- Lágmarka orkunotkun, kaupa tæki sem nota minni orku en önnur. Slökkt á tækjum þegar þau eru ekki í notkun.
Öryggis- og vinnuverndarstefna Þykkvabæjar miðar að því að skapa sterka öryggismenningu og að byggja upp heilsusamlegt vinnuumhverfi þar sem leitast er við að lágmarka áhættur í vinnuumhverfi starfsfólks.
Markmiðið er að koma í veg fyrir slys og óhöpp og skal allur aðbúnaður á vinnustað miða að því að viðhalda góðri heilsu og vellíðan starfsmanna og lágmarka þannig fjarvistir vegna veikinda og óhappa.
Áhætta er metin í allri starfsemi fyrirtækisins og unnið að stöðugum umbótum í öryggis- og vinnuverndarmálum. Atvik sem snerta eða ógna öryggi, heilsu eða vinnuvernd eru skráð og unnið úr þeim í forvarnarskyni.
Tilnefndir eru fulltúrar starfsmanna sem sinna öryggis- og vinnuverndarmálum og miðla þekkingu og upplýsingum til annarra starfsmanna. Allir starfsmenn skulu þó vera meðvitaðir um eigin ábyrgð hvað varðar öryggi og vinnuvernd á vinnustaðnum.
Öryggis- og vinnuverndarstefna Þykkvabæjar byggir á lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
Tilgangur eineltisstefnunnar er að fyrirbyggja einelti, kynbundna áreitni og ofbeldi, kynferðislega áreitni og ofbeldi hjá Þykkvabæjar og er þannig hegðun undir engum kringumstæðum umborin á vinnustaðnum.
Starfsmenn skulu ávallt sýna samstarfsfólki sínu kurteisi og virðingu í samskiptum og eru fordómar ekki liðnir. Lögð er áhersla á að starfsfólk sé ánægt með vinnustaðinn, bæði með starfsumhverfi og starfsanda.
Gripið verður til aðgerða gagnvart starfsfólki sem með orðum, látbragði eða atferli ógnar, truflar eða ögrar öðrum á vinnustað, leggur í einelti eða sýnir kynferðislega áreitni. Slík hegðun getur leitt til áminningar, tilflutnings í starfi eða uppsagnar.
Ef upp koma ágreiningsmál, samskiptaerfiðleikar eða hagsmunaárekstrar sem valdið geta óþægindum er mikilvægt að leysa slík mál án tafar áður en þau þróast til verri vegar.
Stefna þessi gildir fyrir allt starfsfólk Þykkvabæjar og aðra sem málið varðar sbr. reglugerð nr. 1009/2015 um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.
Markmið stefnunnar er að koma í veg fyrir mismunun á grundvelli kyns skv. lögum nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Þykkvabæjar er vinnustaður þar sem starfsfólk er metið á eigin forsendum, og hefur jafna möguleika og sömu réttindi í starfi. Stjórnendur skulu fylgja jafnréttisstefnu fyrirtækisins og vinna að auknu jafnrétti innan þess. Stefna þessi skal vera órjúfanlegur hluti af launastefnu Þykkvabæjar.
Jafnréttisstefna Þykkvabæjar felur í sér:
- Þykkvabæjar stefnir að jöfnu hlutfalli kynja meðal starfsmanna og flokkast ákveðin störf ekki sem sérstök karla- eða kvennastörf.
- Þykkvabæjar greiðir starfsmönnum jöfn laun og sömu kjör fyrir jafn verðmæt og sambærileg störf að teknu tilliti til menntunar (sem starfið krefst), starfsreynslu og frammistöðu.
- Öll störf sem auglýst eru laus til umsóknar, eru opin öllum óháð kyni.
- Þykkvabæjar leggur áherslu á að starfsmenn geti samræmt vinnu og einkalíf.
- Þykkvabæjar gætir þess að allir starfsmenn, óháð kyni, hafi sömu tækifæri til starfsþróunar, endurmenntunar, náms og fræðslu.
- Þykkvabæjar líður ekki einelti, fordóma, kynbundið ofbeldi eða áreitni né kynferðislega áreitni á vinnustað.
Jafnlaunastefna Þykkvabæjar kveður á um markmið og aðgerðir til að tryggja konum, körlum og fólki með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá jöfn laun og sömu kjör fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Með jöfnum launum er átt við að laun skulu ákveðin á sama hátt fyrir fólk óháð kyni. Skulu þau viðmið sem lögð eru til grundvallar launaákvörðun ekki fela í sér kynjamismun (6. gr. laga nr. 150/2020).
Það skal tryggt með:
- Innleiðingu á jafnlaunakerfi, að öðlast jafnlaunastaðfestingu og svo jafnlaunavottun í samræmi við 7. og 8. gr. laga nr. 150/2020.
- Stöðugum umbótum á jafnlaunakerfinu.
- Framkvæmd árlegra launagreininga sem eru kynntar fyrir starfsfólki.
- Úrbótum ef kröfur jafnlaunastaðfestingar eru ekki uppfylltar.
- Árlegri rýni stjórnenda og skilgreining á jafnlaunamarkmiðum.
Þykkvabæjar er annt um friðhelgi einstaklinga og tekur persónuvernd mjög alvarlega. Hjá Þykkvabæjar fer vinnsla persónuupplýsinga fram á lögmætum grundvelli og í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Þykkvabæjar hefur einsett sér að tryggja áreiðanleika, trúnað og öryggi persónuupplýsinga sem unnið er með. Fyrirtækið gætir jafnframt að því að persónuupplýsingar séu ekki unnar frekar á þann hátt að vinnslan sé ósamrýmanleg upprunalegum tilgangi vinnslunnar. Hafið samband við Þykkvabæjar á [email protected] fyrir frekari upplýsingar um persónuverndarstefnuna.